Elmar tapaði naumlega í undanúrslitum á klofnum dómaraúrskurði á alþjóðamótinu Dacal á Spáni.
Elmar Gauti Halldórsson, landsliðsmaður í hnefaleikum, vann til bronsverðlauna á Dacal World Cup nú fyrir skömmu. Hann vann viðureign gegn Jaume Andreu Fiol Ayovi í -75 kg flokki og fór því í undanúrslit.
Elmar keppti því næst gegn Frakklandsmeistaranum Chadi Baraia, feiknarsterkur andstæðingur með mikla reynslu. Eftir hæga fyrstu lotu náði Elmar að sækja vel en að endingu endaði viðureignin með sigri Frakkans á klofnum dómaraúrskurði.
Elmar fór að loknu móti beint í að undirbúa næsta mót en næstu helgi mun hann keppa ásamt fjölmörgum Íslendingum í Hillerød.
Áfram Ísland!
Comments