
Afreksstarf
Ísak Guðnason með bronsverðlaun á Eindhoven Box Cup
Ísak Guðnason vann til bronsverðlauna á Eindhoven Box Cup sem fram fór í Eindhoven í Hollandi dagana 5.-10. júní.
Afreksmál
Hér má finna allt sem viðkemur afreksmálum Hnefaleikasambands Íslands - afreksstefnu, landsliðsverkefni og árangur íslenskra keppenda á alþjóðlegum vettvangi.
Landsliðsnefnd HNÍ fer með afreksstarf sambandsins, val keppenda í landsliðsverkefni og skipulag þátttöku Íslands á erlendum mótum. Áhersla er lögð á stigvaxandi verkefnaval, þróunarverkefni og markvissa uppbyggingu yngri landsliðshópa.
Á síðasta starfsári unnu íslenskir keppendur til verðlauna á mótum í meðal annars Finnlandi, Danmörku, Lettlandi, Portúgal og Bandaríkjunum, og Ísland á nú tvo Norðurlandameistara í hnefaleikum.
Stefna
Afreksstefna HNÍ 2026-2028
Grunnur að markvissari uppbyggingu afreks- og landsliðsstarfs.

Afreksstarf
Ísak Guðnason vann til bronsverðlauna á Eindhoven Box Cup sem fram fór í Eindhoven í Hollandi dagana 5.-10. júní.

Afreksstarf
Íslenski hópurinn stóð sig afar vel á alþjóðlega Pirkka mótinu í Finnlandi dagana 8.-10. maí - alls þrjú gull, þrjú silfur og þrjú brons.

Afreksstarf
Ísak keppir í Elite -75 kg flokki og var dreginn beint áfram í fjórðungsúrslit þar sem hann mætir þýska keppandanum Elias Nwaka.