Beint í efni

Fræðsla og þjálfun

Menntun dómara

Dómaranefnd HNÍ sér um menntun og réttindi dómara. Dómarar þurfa að uppfylla skilyrði um aldur, félagsaðild og námskeið áður en þeir öðlast réttindi.

Stigadómari

Til að öðlast réttindi sem stigadómari þarf viðkomandi að vera í félagi sem á aðild að HNÍ, vera orðinn 20 ára og hafa lokið dómaranámskeiði HNÍ.

Hringdómari

Réttindi hringdómara byggja á gildum réttindum stigadómara til viðbótar við að hafa dæmt í að minnsta kosti 2 ár og 100 leiki sem stigadómari.

Dómarabók

Þegar réttindum er náð fá dómarar dómarabók frá sambandinu þar sem réttindi og leikjaskrá eru skráð. Dómaranefnd HNÍ var endurvakin á síðasta starfsári með áherslu á aukna fagmennsku, hlutleysi í dómgæslu og frekari menntun dómara.

Tengd skjöl

  • Reglugerð um dómara og umsjónarmenn

    Samþykkt í desember 2025, tók gildi 1. janúar 2026. -