Mótamál
Bikarmótaröð HNÍ
Bikarmót eru haldin af HNÍ rúmlega sex sinnum á ári. Keppt er í öllum þyngdarflokkum Elite karla og kvenna, ásamt ungmenna- og unglingaflokkum karla og kvenna.
Keppnisform
Hámarksfjöldi keppenda í hverjum flokki er fjórir. Keppt er yfir tímabilið og safna keppendur stigum sem mynda heildarstöðu bikarmótaraðarinnar.
Þátttökuréttur
Þeir sem hafa gilda þátttökubók frá HNÍ, eru skráðir í hnefaleikafélag innan vébanda HNÍ í félagakerfi ÍSÍ og eru Elite keppendur eða ungmenni/unglingar hafa þátttökurétt á bikarmót HNÍ.
Erlendir ríkisborgarar þurfa að auki að hafa haft samfellda búsetu hérlendis í að minnsta kosti 3 ár. Mótanefnd HNÍ er þó heimilt að veita undanþágu í sérstökum tilfellum.
