Afreksmál
Afreksstefna HNÍ 2026-2028
Afreksstefna Hnefaleikasambands Íslands 2026-2028 leggur grunn að markvissari uppbyggingu afreks- og landsliðsstarfs næstu ára.
Áhersla er lögð á skýrari þróunarleið fyrir keppendur, faglegra verkefnaval og betri langtímasýn í uppbyggingu íþróttarinnar. Samhliða stefnunni hefur verið sett fram aðgerðaráætlun fyrir árið 2026 þar sem skilgreind eru helstu verkefni, áherslur og fjárhagsrammar ársins.
