Beint í efni

Mótamál

Íslandsmeistaramót

Íslandsmeistaramót er haldið af mótanefnd HNÍ einu sinni á ári. Mótið er útsláttarkeppni í öllum þyngdarflokkum Elite karla og kvenna, ásamt ungmenna- og unglingaflokkum.

Þátttökuréttur

Keppendur þurfa að hafa gilda þátttökubók frá HNÍ, vera skráðir í hnefaleikafélag innan vébanda HNÍ og vera Elite keppendur eða hafa að lágmarki 4 bardaga að baki (ungmenna- og unglingaflokkar).

Erlendir ríkisborgarar þurfa að hafa haft samfellda búsetu hérlendis í að minnsta kosti 3 ár. Keppandi má eingöngu keppa á meistaramóti eins lands hvert ár.

Skráning

Umsókn um þátttöku á Íslandsmeistaramóti er að finna á skjalasíðu sambandsins ásamt reglugerð um Íslandsmeistaramót.