Beint í efni

Sambandið1 mín lestur

Dominika Zawadzka ráðin framkvæmdastjóri HNÍ

Dominika Zawadzka hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Hnefaleikasambands Íslands í 25% starf frá og með deginum í dag.

Höfundur: HNÍ

Dominika
Dominika

Dominika hefur starfað sem dómari í hnefaleikum frá árinu 2023 og þekkir því vel til íþróttarinnar og mótahalds. Hún er með BSc-gráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík og stundar nú MEd-nám í íþróttakennslu.

Í starfinu mun Dominika sinna daglegri umsýslu sambandsins, samskiptum við aðildarfélög og eftirfylgni verkefna í samstarfi við stjórn og nefndir HNÍ. Með ráðningunni er stefnt að því að styrkja daglega starfsemi sambandsins og bæta þjónustu við félögin.

Við bjóðum Dominiku velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins!

Tengdar fréttir