Sambandið1 mín lestur
Ronald Bjarki úr leik eftir jafnan bardaga á BOXAM
Ronald Bjarki Manason mætti í dag Sami Jeddi frá franska landsliðinu í fyrsta bardaga sínum á BOXAM-mótinu á Spáni. Bardaginn var tæknilegur og jafn frá upphafi. Fyrir þriðju og síðustu lotuna var staðan jöfn hjá tveimur af þremur dómurum og því allt opið fyrir lokakaflann.
Höfundur: HNÍ

Ronald átti sterka þriðju lotu að mati íslenska teymisins, en þegar niðurstaðan var kynnt féll hún Frakkanum í vil. Sami Jeddi vann bardagann á stigum, 3–0, með dómaratölunum 29–28, 29–28 og 30–27.
Niðurstaðan þýðir að Ronald er úr leik á BOXAM að þessu sinni.
Davíð Rúnar, landsliðsþjálfari, sagði niðurstöðuna vissulega sára en að frammistaða Ronalds gæfi áfram tilefni til stolts:
„Þungt var það en stoltið alltaf jafn mikið. Bardaginn var mjög tæknilegur og jafn allan tímann og fyrir þriðju lotu var allt opið. Þetta er virkilega sárt og erfitt að kyngja, en svona er boxið stundum.“
Davíð segir fókusinn nú strax færast á næstu verkefni og stóru markmiðin séu óbreytt.
„Það eina sem hægt er að gera er að setja kassann upp, halda áfram og reyna að brosa með augun á næsta verkefni. Ég er ennþá með augun á sömu stóru markmiðunum – það breytist aldrei.“
Ronald og Davíð Rúnar halda nú áfram vinnunni með augun á næstu verkefnum.
Áfram Ronni
Tengdar fréttir

Sambandið
Ronald Bjarki keppir á BOXAM á Spáni
Ronald Bjarki Manason er mættur til La Nucía á Spáni þar sem hann keppir fyrir Íslands hönd á hinu sterka alþjóðlega BOXAM-móti. Með honum í för er Davíð Rúnar, landsliðsþjálfari Hnefaleikasambands Íslands.

Sambandið
Ársþing Hnefaleikasambands Íslands 2026
Ársþing HNÍ fór fram 9. maí 2026 í sal ÍSÍ í Laugardal. Farið var yfir starfsárið, samþykktar lagabreytingar og kosin ný stjórn.

Sambandið
Öflug byrjun árs hjá Hnefaleikasambandi Íslands
Á fyrstu mánuðum ársins hefur starfsemi HNÍ verið öflug, með fjölda móta innanlands og þátttöku íslenskra hnefaleikamanna erlendis.
