Beint í efni

Afreksstarf1 mín lestur

Ísak Guðnason keppir á Eindhoven Box Cup um helgina

Ísak keppir í Elite -75 kg flokki og var dreginn beint áfram í fjórðungsúrslit þar sem hann mætir þýska keppandanum Elias Nwaka.

Höfundur: HNÍ

Ísak Guðnason undirbýr sig fyrir Eindhoven Box Cup
Ísak Guðnason undirbýr sig fyrir Eindhoven Box Cup

Íslenski hnefaleikamaðurinn Ísak Guðnason keppir um helgina á hinu virta Eindhoven Box Cup móti í Hollandi, sem er eitt sterkasta alþjóðlega hnefaleikamót Evrópu og ber gullvottun frá European Boxing.

Mótið hefur á undanförnum árum laðað að sér marga af sterkustu keppendum Evrópu og heims og er mikilvægur vettvangur fyrir unga og efnilega boxara til að safna reynslu á hæsta stigi.

Ísak keppir í Elite -75 kg flokki og var dreginn beint áfram í fjórðungsúrslit þar sem hann mætir þýska keppandanum Elias Nwaka á laugardaginn.

Við óskum Ísaki góðs gengis á mótinu.

  • Eindhoven Box Cup
  • landslið
  • erlend mót

Tengdar fréttir