Beint í efni

Afreksstarf1 mín lestur

Ísak Guðnason með bronsverðlaun á Eindhoven Box Cup

Ísak Guðnason vann til bronsverðlauna á Eindhoven Box Cup sem fram fór í Eindhoven í Hollandi dagana 5.-10. júní.

Höfundur: HNÍ

Eindhoven Box Cup er eitt sterkasta alþjóðlega hnefaleikamót Evrópu og ber gullvottun European Boxing. Á mótið mæta árlega margir af sterkustu hnefaleikamönnum heims og því um afar krefjandi verkefni að ræða.

Ísak hóf keppni í fjórðungsúrslitum þar sem hann mætti Þjóðverjanum Elias Nwaka. Eftir spennandi og jafnan bardaga tryggði Ísak sér sigur með dómaraúrskurði 3-2 og þar með sæti í undanúrslitum mótsins.

Með sigrinum tryggði Ísak sér jafnframt verðlaunasæti og að lokum bronsverðlaun á þessu sterka móti. Árangurinn er einn sá besti sem íslenskur hnefaleikamaður hefur náð á alþjóðlegu móti á síðustu árum og staðfestir þær framfarir sem Ísak hefur sýnt á undanförnum misserum.

Hnefaleikasamband Íslands óskar Ísaki innilega til hamingju með árangurinn og hlakkar til að fylgjast með honum í komandi verkefnum.

  • Eindhoven Box Cup
  • landslið
  • erlend mót

Tengdar fréttir