Beint í efni

Sambandið1 mín lestur

Íslendingar á opnunarhátíð heimsmeistaramóts U19

Íslenski hópurinn tók þátt á opnunarhátíð heimsmeistaramótsins sem haldið er í Budva Svartfjallalandi. Opnunarhátíðin átti sér stað kvöldið 15 október.

Höfundur: HNÍ

Íslenski hópurinn á opnunarhátíðinni

1 / 2

Íslenski hópurinn á opnunarhátíðinni

Allur hópurinn tók þátt á opnunarhátíðinni þar sem Mihail Fedorets var fánaberi íslenska hópsins.

Mótið er haldið í annað sinn á vegum World Boxing og mun það standa frá 16 október til 27 október í Budva Svartfjallalandi þar sem um 470 keppendur frá 69 þjóðum þar á meðal Íslandi munu taka þátt.

Íslenski hópurinn mun keppa:

Sunnudaginn 18 október: Ronald Bjarki Mánason á móti Brayden Dyer frá Englandi í -50kg flokki

Mánudaginn 19 október: Mihail Fedorets á móti Yanis Heger frá Þýskalandi í -70kg flokki

Hægt er að fylgjast með mótinu í gegnum World Boxing TV.

Tengdar fréttir